03.01.2012 17:16
Hér á landi er ekkert svínabú komið með vottun, hvorki á lífrænt
ræktuðu né vistvænu svínakjöti. Íslenskt veðurfar gerir okkur erfitt
fyrir að uppfylla þær kröfur sem eru gerðar til slíkra búa. Ólíklegt er
að svínum af þeirri tegund sem við höfum myndi líða vel utandyra á
Íslandi. En við gerum ýmislegt annað sem skiptir miklu máli til þess að
láta öllum okkar dýrum líða vel. Allar okkar gyltur bera nafn sem gerir
okkur auðveldara fyrir að passa upp á þarfir þeirra og veikleika. Á
búinu okkar er ekki notast við nein lyf fyrir utan bóluefni. Fúkkalyf og
verkjastillandi lyf eru eingöngu notuð í lífdýr sem þarfnast þess í
kringum got. Það segir samt ekki að við látum önnur dýr kveljast eða
hjúkrum þeim ekki heldur erum við jú að framleiða mat og þess vegna
reynum við að búa þannig að dýrunum að þau verði ekki veik. Ef upp koma
aðstæður sem þessar þá eru þau tekin af lífi en ekki látin kveljast.
Við erum með endurvinnslu á okkar búi, flokkum td allt plast og allan
pappa. Auk þess eru svínin fóðruð á umframbökuðu brauði frá bakaríum sem
áður var keyrt á haugana en er afbragðs fóður ef passað er upp á aðbæta
inn próteini og nauðsynlegum vítamínum.
Ég og fjölskylda mín höfum verið með svínaræktun í yfir 30 ár og í okkar huga eru svín einstakar skepnur.
21.11.2011 10:32
það verður tekið við seinustu pöntunum fyrir jól 2 desember. Verð og vinnslumöguleikar eru undir linknum svínakjöt.
10.06.2011 22:12
Á morgun er opin dagur hjá okkur og Gróðrastöðinni Ártanga. Hægt verður að skoða gróðrastöðina og fá smá kjöt að smakka og svo verða tveir litlir grísir til sýnis Hans og Gréta :) svo er bara að drífa sig í að panta grillkjötið hægt er í ár að panta það í hálfum og 1/4 grís.